Viltu styrkja?
Hægt er að styðja við starfsemi Sóleyjar og félaga með þrennum hætti.
1) Kjarni starfsins er uppbygging styrktarforeldrakerfis. Áætluð framfærsla barns er 6000 krónur á mánuði. Við bjóðum fólki einnig að taka þátt í framfærslu að hluta, til dæmis með greiðslu helmings framfærslukostnaðar eða eins þriðja. Einnig höfum við hvatt til þess að fjölskyldur eða vinir sameinist um að styðja eitt barn.
2) Einnig gefst fólki kostur á að styrkja framkvæmdir við byggingu húss fyrir starfsemi Victo með föstum mánaðarlegum framlögum. Hver og einn velur sjálfur þá upphæð sem rennur til sjóðsins í hverjum mánuði.
3) Loks er mögulegt að styðja barnaheimilið með stöku framlagi í byggingarsjóð.
Byggingarsjóður
Viltu styrkja Sóley og félaga til þess að byggja heimili og skóla fyrir börnin í Aneho. Anehobær hefur gefið Victo land í útjaðri bæjarins þar sem fyrirhugað er að reisa hús og skóla. Framkvæmdir munu væntanlega hefjast í haust og framlög til byggingarinnar eru mjög vel þegin.
Upplýsingar um sjóð Sóley og félagar: Reiknisnr. 301-13-304799 og kennitala 521208-0660
