Um félagið

Sóley og félagar er styrktarfélag. Markmið félagsins er að styðja við starfsemi systur Victo sem hefur opnað faðm sinn fyrir heimilislausum börnum í Togo. Hún rekur barnaheimili í bænum Aneho í Togo, auk þess sem hún styður skólagöngu skjólstæðinga sinna og liðsinnir þeim sem eldri eru við að koma undir sig fótunum með því að styrkja menntun þeirra og styðja
þau út í atvinnulífið. 
Stjórn Sóleyjar og félaga skipa Alda Lóa Leifsdóttir, Ásta Ingibjartsdóttir, Gunnar Smári Egilsson og Steinunn Stefánsdóttir.
Systrafélag Sóleyjar og félaga í Togo heitir Fleur de Soleil. Verkefni þess félags er að vera tengiliður milli Sóleyjar og félaga og starfsemi Victo.
Í stjórn Fleur de Soleil eru þau Madame EKOUE-KOUVAHEY Dopé Kayi, Sœur AGBO Kokoé Mawussi, Madame LEIFSDOTTIR Alda Loa, Monsieur GBEDEY Céna Coudjo Kossivi, Madame INGIBJARTSDOTTIR Asta, Madame AWLIME Antoinette, Madame AKPLOGAN Alphonsine Djigbodé og Monsieur EGILSSON Gunnar Smari. 
Allir aðstandendur beggja félaga vinna án endurgjalds. Öll framlög renna beint til hjálparstarfsins milliliðalaust.

l’atelier d’écriture dirigé par edmond

Ég varð mjög undrandi þegar ég sá hvíta manneskju í fyrsta skipti, hörundið var gjörólíkt mínu en ég tók eftir að við vorum með sömu útlimi sem gaf mér hugrekki til að nálgast hvíta manninn. Í mér bjó hræðsla sem breyttist í gleði því hvíta fólkið hafði áhuga á mér og stríddi mér í leiðinni.
 (Thérese Akpedje 16 ára)

HAFÐU SAMBAND

(required)
(required)

 
Sóley og félagar | Þórsgötu 10, 101 Reykjavík | Kt. 521208-0660 | E-mail:soleyogfelagar@soleyogfelagar.is | Sími: +354 659 7515