Börnin
Börnin hjá Victo eru á öllum aldri og eru hjá henni af ýmsum ástæðum. Flest barnanna eru munaðarlaus af öðru eða báðum foreldrum. Nokkur börn hefur Victo tekið að sér þegar fjölskyldan telur sig ekki geta annast og menntað barnið. Stúlkur eru í meirihluta hjá henni.
Samkvæmt tölum Unisef ljúka 78% tógóískra barna barnaskólanámi (premier) af þeim eru það aðeins 32% stúlkur. Oft hætta stúlkurnar námi eftir barnaskólann því þær eru líklegri til þess að fara strax að vinna. Þessvegna hefur það alltaf verið forgangsverkefni hjá Victo að koma stúlkunum sínum til mennta.
Styrkja barn
Kostnaður við uppihald, fræðslu og læknishjálp hvers barns er um 6.000 krónur. Möguleiki er að greiða fulla framfærslu með barni eða hálfa (3.000 krónur á mánuði). Á meðan börnin njóta ekki fullrar framfærslu framfleytir Victo þeim með þeim ráðum sem hún hefur hingað til haft, þ.e.a.s. ræktun matvæla, matargjöfum og einstaka peningagjöfum.
Börn með styrktarforeldra (aðeins aðgengilegt skráðum styrktarforeldrum)
BÖRN ÁN STYRKTARFORELDRA
Bruce MOISE | Fæddur 1999. Munarðarlaus. ...............................................................
Florentine KOUVO | 7 ára. Munaðarlaus frá föður og móðir fátæk. Systir hennar er einnig á heimilinu.
Gentile BURKUM | 16 ára. Foreldrar mjög fátækir. .................................................................
Nadia DIPKO | Móðir dó við barnsburð. Fædd 2009. ...............................................................

















