Verkefnin

BYGGJA HEIMILI OG SKÓLA

Victo fékk landi úthlutað frá Anehobæ sem við hjá Sóley&félagar hyggjumst aðstoða hana að byggja á. Pálmi Guðmundsson arkitekt fór til Togo í júli að skoða landið og er núna að teikna skóla, heimili fyrir börnin og heilsugæslu. Skólinn á að þjóna hvort tveggja börnum Victos og börnunum úr héraðinu.

VISTVÆN ORKA

Ragmagnsleysi vegna vatnsskorts er stórt vandamál í Tógó. Ef við komum fyrir sólarsellum þá getur Victo jafnvel selt umframorku og nýtt sér það sem tekjulind. Þrátt fyrir fátæktina eru allir með farsíma sem þarf að hlaða.

HEILSUGÆSLUSTÖÐIN

Heilsugæslu vantar bæði fyrir skjólstæðinga Victo og sveitina. Áhugi er fyrir því að skipuleggja ljósmæðranet líkt því sem Dr. Zafrullah gerði í kringum Savar í Bangladesh til þess að minnka líkurnar á dauða af barnsförum sem er algengur í Tógó. Dr. Zafrullah þjálfaði unglingsstúlkur til þess að fylgjast með barnhafandi konum og flytja þær á spítala eða koma þeim til hjálpar þegar þörf krefð. Þær ferðast um sveitina á hjólum og kortleggja ástandið. Þetta kerfi reyndist mjög vel, dauði kvenna við barnsburð er aðeins fjórðungur á þessu svæði miðað við aðra staði í Bangladesh og ungu stúlkurnar fá virðingu og laun fyrir.

Verkefni í framkvæmd

SAUMASTOFAN

Sóley & félagar keypti nokkrar saumavélar og nú er rekið saumaverkstæði hjá Victo. Hinn frábæri klæðsker Dieudonne frá Lome keyrir til hennar tvisvar í viku og saumar með þeim Leon og Daniel sem Victo kostaði til klæðskeranáms á sínum tíma. Einnig eru nokkrar af elstu stúlkunum hennar að læra af þeim á verkstæðinu. Þeir hafa hannað og saumað föt fyrir Evrópubúa sem hægt er að kaupa í Reykjavík undir merkinu TOGO TO GO. Fötin hafa fengið ágætar viðtökur, sérstaklega hettujakkarnir (sem Gunnlaugur Bjarki Snædal rekstrarstjóri NTC telur vera mjög “söluvænlega”).

BISSAP SAFINN

Jus de Bissap er heilsudrykkur úr rauðu Hibiscus blómunum. Ótrúlegur drykkur ríkur af C-vítamínum, steinefnum og andoxíðefnum. Á vesturlöndum er safinn notaður við of háum blóðþrýstingi og þykir góður fyrir nýrnastarfsemina. Jus de Bissap er sannkallaður þjóðardrykkur í Vestur-Afríku. Í Tógó er hann bæði drukkinn sem svaladrykkur og heilsudrykkur, stundum eilítið kryddaður með engifer eða kanil og jafnvel vanillu. Hin rauðu Hibiscus blóm henta vel til ræktunar í Tógó og enn þægilegra að flytja þau út af því að þau eru þurrkuð. Victo ræktar blómin sem hún sendir til Íslands. Sóley&félagar leggja sig fram við að brugga safann og kynna hann fyrir Íslendingum.

HÁRGREIÐSLUSTOFAN

Jeanette einn skjólstæðinga Victos, opnaði hárgreiðslustofu eftir að Sóley&félagar fjárfestu í hárþurrkum, gervihári og hægindastólum.

Draumaverkefni

VINAFÓTBOLTAFÉLAG

Draumurinn er að stofna vinafótboltafélag ytra með stuðningi frá knattspyrnufélagi hérna heima og KSI.

ÆVINTÝRABÓK

Edmond einn af elstu strákunum hjá Victo er að klára menntaskólann og stefnir á heimsspekinám í háskólanum. Hann hefur tekið það verkefni að sér að safna munnmælasögum úr héraðinu og sérstaklega sögum og ævintýrum fyrir börn. Ef þetta heppnast vel þá ætlar Sóley og félagar að gefa þetta út á íslensku.

Sóley og félagar | Þórsgötu 10, 101 Reykjavík | Kt. 521208-0660 | E-mail:soleyogfelagar@soleyogfelagar.is | Sími: +354 659 7515