Heimilið

Alda Lóa einn af aðstandendum Sóleyjar & félaga segir hér að neðan frá fyrstu ferð sinni til Tógó. Og þegar hún fór á heimilið í Aneho og kynntist Victo.

Það er eitt og hálft ár síðan að ég kom í fyrsta sinn til Aneho. Það er ekki lengra síðan. Það var á sunnudegi, fáir á ferli, og við lögðum bílnum fyrir utan hrörlegt hliðið sem var dottið af hjörunum og gengum yfir lóðina að dæmigerðu húsi frá nýlendutímabilinu. Húsið sem var notað af hinu opinbera á sínum tíma, er núna í umsjá Victo sem býr þar ásamt fjórum reglusystrum og sjötíu börnum. Tré sem ég kann ekki að nefna skartaði bleikum blómum og matjurtargarðurinn á vinstri hönd virtist vera fjölbreytilegur og ágætlega hirtur.

Þegar við komumst nær húsinu heyrðist barnsgrátur úr forsælunni. Fyrir framan eldhúsið í skotinu þar sem börnunum er skammtaður matur sátu tvær konur hvor með sitt ungabarnið sem þær voru að þrífa. Annað barnið var drengur og hann var hlandbrunnin. Þær sögðu okkur að lögreglan hefði komið með drenginn til Victo daginn áður þar sem móðir hans hafði skilið hann eftir hjá ömmu sinni sem sinnti ekki barninu.

Þarna í þessu skoti er þvottaaðstaðan fyrir ungabörnin. Þetta er skotið fyrir framan borðstofu barnanna og innganginn upp á loft þar sem börnin sofa. Þarna var ekki beinlínis hreint og allt morandi í svörtum flugum sem sóttu í litlu krílin. Heimsóknin varð ekki löng í þetta skiptið. Fólk var annaðhvort í kirkju eða að hvíla sig. Og við kvöddum þvottakonurnar að sinni.

svefnskáli-1

Svefnskáli krakkanna

Næst þegar við komum voru allir heima og þá kom í ljós að álmurnar sem ganga út frá húsinu er húsnæði skólans sem er rekinn af þeim systrum. Þarna er skóli fyrir yngstu börnin hennar Victo og önnur börn úr Anehobæ.

ungabornene

Hérna kúrðu litlu börnin á ganginum áður en þau fengu sína eigin vöggustofu

Í þetta skipti fengum við að skoða vistarverurnar og það fyrsta sem við sáum voru svefnskálarnir uppi þar sem um það bil fimmtíu börn sofa í kojum en án dýna. Ungabörnin sem vakna á nóttunni sofa inni hjá systrunum að en yngri börnin eru saman í herbergi með tilsjónarmanneskju. Hryllilega loftlaust og alltof þröngt um börnin.

Við fengum hjálp næsta dag í Lome við að panta sextíu dýnur frá dýnuverksmiðjunni. Síðan spurðum við Victo hvað þær vantaði. Þær vantaði allt, tölvu, þvottavél, síma, skó eins og við vorum í (svona þýskir göngusandalar) og saumavélar. Við gátum útvegað þeim þetta, þvottavélin er hinsvegar ekki komin í gagnið þær vilja spara hana þangað til þær flytja í nýtt húsnæði.

voggustofa

Vöggustofan eftir breytingar

Þá kom í ljós að Victo hafði fengið úthlutað landi í útjaðri Aneho til þess að byggja húsnæði fyrir sig og börnin. Bærinn og kirkjan vildu ekki láta Victo búa lengur við þennan þrönga húskost, hún yrði að finna sér eitthvað betra.

Það er okkar heitasta ósk að Victo geti byggt á þessu landi og látið draum sinn þannig rætast. Og viljum við gera allt til þess að aðstoða hana við það. En það er stór framkvæmd og á meðan að við söfnum fyrir því verkefni höfum verið að gera upp núverandi vistarverur þannig að það sé að minnsta kosti auðveldara að þrífa og halda heimilinu hreinu sem er hvergi nauðsynlegra en í Afriku

Borðstofan fyrir breytingar.
Borðstofan fyrir breytingar.

nyr bordsalur

Borðstofan eftir breytingar.

skammtad

Maturinn framreiddur í skotinu þar sem litlu börnin eru þvegin.

Þvottaaðstaðan fyrir eldri börnin.

Þvottaaðstaðan fyrir eldri börnin.

Sóley og félagar | Þórsgötu 10, 101 Reykjavík | Kt. 521208-0660 | E-mail:soleyogfelagar@soleyogfelagar.is | Sími: +354 659 7515