GEFÐU BOLTANN

by aldaloa on 19/06/2010

SÖFNUNARÁTAK HELGINA 26-27 JÚNÍ.

Heimsmeistarakeppnin í fótbolta fer nú fram í Afríku í fyrsta skipti. Það á vel við. Hvarvetna í Afríku má sjá fólk í fótbolta. Völlurinn getur verið sandur eða leir, markið tré eða steinar og boltinn stagbætt gúmmítuðra eða þéttvafinn taubolti. Til að hafa gaman af leiknum þarf aðeins áhuga, andstæðing, tuðru og samkomulag um hvar markið á að vera.

Sóley & félagar standa fyrir sölu á 10.000 tauboltum helgina 26-27 júní. Þá munu börn á vegum íþróttafélaga bjóða tauboltana til sölu. Fram að því hafa ýmsir tekið þátt í boltaframleiðslunni, saumklúbbar um allt land, vistmenn á Hrafnistu og listasmiðjan á Laufásborg svo eitthvað sé nefnt.

Tauboltinn kostar 1.500 kr og framlagið rennur til byggingar nýs heimilis fyrir um 100 börn. Vertu með okkur í þessu átaki og taktu vel á móti sölumönnunum með tauboltana helgina 26-27 júní.

Skrifa athugasemd

Sóley og félagar | Þórsgötu 10, 101 Reykjavík | Kt. 521208-0660 | E-mail:soleyogfelagar@soleyogfelagar.is | Sími: +354 659 7515