Allir sem komu í Hagaskóla miðvikudaginn 24. mars síðastliðinn hljóta að hafa fyllst bjartsýni og gleði. Krakkarnir höfðu umbreytt skólanum i flóamarkað, sirkús og hjólaverkstæði; snyrtistofu, kaffihús og tónleikasal. Skólinn iðaði af uppátækjasemi, hæfileikum og lífskrafti.
En tilefni krakkana var ekki einvörðungu að skemmta sér og öðrum heldur að gera gagn. Dagurinn bar yfirskriftina Gott mál og andvirði alls erfiðis krakkanna var látið renna til góðgerða og helmingurinn kom í hlut Sóley & félagar. Og það var upphæð sem aldeilis munar um, 508 þúsund krónur sem munu renna í byggingasjóðinn.
Það var gefandi að fylgjast með krökkunum í Hagaskóla þennan dag. Það var eins og þeim væru allir vegir færir og væru þakklát fyrir það, nógu þakklát til að rétta þeim hjálparhönd sem ekki eru eins gæfusöm. Það eitt að njóta samvista við slíkt fólk læknar mann af öllum raunum.
Um leið og Sóley & félagar þakka kærlega fyrir sig óskum við krökkunum í Hagaskóla, kennurum þeirra og foreldrum til hamingju með glæsilegan dag. Vonandi verður þetta árlegur viðburður næstu ár og aldir.





