Gott mál í Hagaskóla – Unglingar fyrir unglinga.
Miðvikudaginn 24. mars næstkomandi verður haldinn góðgerðardagur í Hagaskóla. Húsið verður opið fyrir almenning frá klukkan 16:00 til 19:00. Markmiðið er að safna peningum fyrir tvenn góðgerðarsamtök. Síðustu vikur hafa krakkarnir í skólanum unnið hörðum höndum að undirbúningi dagsins. Meðal þess sem boðið verður upp á eru fjölbreytt tónlistar- og dansatriði, flóamarkaður, andlitsmálning fyrir börnin, hjólaviðgerðir fyrir sumarið, litun og plokkun, naglasnyrting og margt fleira spennandi verður í boði gegn vægri greiðslu. Einnig verða þrjú kaffihús víðs vegar um skólann þar sem gestir og gangandi geta keypt sér kaffi og annað góðgæti. Allur ágóði af söfnuninni rennur til tveggja góðgerðarsamtaka, Sóleyjar og félaga og Vildarbarna. Sóley og félagar eru grasrótarsamtök sem vinna að uppbyggingu heimilis fyrir munaðarlaus börn og skóla fyrir börn og unglinga í Tógó. Vildarbörn er ferðasjóður fyrir langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður. Við vonumst til að sjá sem flesta á þessum degi og sýna samstöðu.

