
Öskupokagleðin heppnaðist einstaklega vel. Tæplega 100 konur mættu í Lækjargötu 2 og saumuðu af kappi í einn og hálfan tíma. Tóta, Tína og Ditta voru á saumavélunum og renndu pokunum í gegn. Pokarnir eru einstakir og hver með sínu sniði og bera höfundi sínum fagurt vitni. Sumir bera steina og aðrir ösku og enn aðrir málshætti eða annars bara tómir. Tóta (Þórunn Sveinsdóttir) dró upp úr pússi sínu beygjanlega títuprjóna sem hún hefur geymt einsog fjársjóð í gegnum súrt og sætt. Við góðar undirtektir las Bragi Ólafsson kafla úr bók sinnni sem kemur út í haust og Árni Björnsson fræddi viðstadda um öskudagshefðina. Saumvélarnar neyddust til þess að þagna á meðan, sem þær gerðu með seming, en það má með sanni segja að kappssemin hafi ríkt í salnum. Eftir undurfagran söng Ingveldar Ýr fengu konurnar að borða enda orðnar sársvangar eftir vinnutörnina. Kreppufæðið gerði mikla lukku en það er allt Þóri Bergssyni kokki og Ástu Ingibjartsdóttur skurðarmeistara að þakka. Þeim til aðstoðar voru þeir Snær og Gunnar Smári. Það verður líka að þakka sérstaklega bestu fiskbúð borgarinnar HAFBERG, Sævari í BÚR sem gaf allt grænmetið, Ara í YGGDRASIL sem gaf hrásykurinn og eggin sem voru notuð í Marensskýið að hætti Áslaugar Snorra en það var borið fram í lok kvöldsins og aðdáun viðstaddra leyndist ekki. Saumadísirnar sem mættu til vinnu eiga allar skilið miklar þakkir. Uppskera kvöldsins eru 550 pokar sem verða til sölu í bókabúðinni Iðu, Kaffifélaginu, Yggdrasil, 12 tónum, Lítil í Upphafi og öðrum góðum búðum á Skólavörðustígnum. Pokinn mun kosta 400 kr. sem renna óskertar í byggingarsjóð Sóley og félaga. Takk, takk, takk.

