Gleðilegt ár kæru velunnarar

by aldaloa on 15/01/2010

ATTIGLO Dela

Kæru styrktarforeldrar og velunnarar!

Gleðilegt ár, vonum að þið hafið haft það gott yfir hátíðirnar.

Það er alltaf nóg að gera hjá Vito og hennar fólki í Aneho, þar skiptast á sorg og gleði á heimilinu. Tvö börn dóu seinnipart ársins, þetta voru ung börn, nokkura mánaða, sem voru nýkomin til Vito. Annað dó úr eyðni en hitt að völdum sýkinga sem það fékk í flóðunum sem urðu á svæðinu í haust. Við höfum líka fengið góðar fréttir. Nokkur af börnunum standa sig mjög vel í skólanum, t.d. er Dela sem verður 16 ára í júli afburðarnámsmaður, hún hefur fengið viðurkenningar fyrir góðan árangur. Hún er líka sérstaklega dugleg á heimilinu og góð við yngri börnin. Við vonum að þessi unga kona fái að blómstra og nýta sér alla sýna góðu kosti og hæfileika í framtíðinni.

Skrifa athugasemd

Sóley og félagar | Þórsgötu 10, 101 Reykjavík | Kt. 521208-0660 | E-mail:soleyogfelagar@soleyogfelagar.is | Sími: +354 659 7515