Kæru styrktarforeldrar og velunnarar!
Bestu þakkir fyrir góð viðbrögð við jólagjafasendingunum sem fóru langt fram úr væntingum, allir sendu pakka til sinna barna og þeir sem ekki eru með syrktaraðila fengu líka pakka.
Alfonsína litla er búin að fá sinn pakka frá Karen og Högna, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, spenningurinn var það mikill að pakkinn var opnaður strax.
Annars allt gott að frétta frá Tógó, Roger er nýr tengiliðurinn okkar hjá Victo og nú heyrum við í þeim oftar. Lífið gengur sinn vanagang á heimilinu og þau byrjuð að undirbúa jólin. Kostningar eru á næsta leiti í landinu, og verða þær 28. febrúar nk. Tógó er að stíga sín fyrstu skref sem “lýðræðisríki” og eru þetta þriðju kostningarnar í landinu frá því að einræðisherrann Eyjadema féll frá.
Gaman að segja frá því að 10 nýjir styrktarforeldrar bættust í hópinn í síðasta mánuði og nú eru einungis 21 barn sem hafa ekki styrktaraðila. T.d. vantar Albert Kodjovi 2 ára og systkinunum Benoit og Marie-Ange Dossou 10 og 9 ára styrktaraðila.
Með ósk um gleðileg jól og farsældar á komandi ári!

